20 Mars 2012 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í vesturátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Fléttuvöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.