18 Mars 2015 10:44

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í vesturátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Fléttuvöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.