30 Mars 2016 17:22

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í vesturátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Fléttuvöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.