21 Mars 2017 09:05

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í vesturátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Fléttuvöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.