31 Mars 2008 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í suðurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 17 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Eftirlit lögreglunnar á Fléttuvöllum er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Fléttuvöllum var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.