1 Nóvember 2010 12:00

Brot 101 ökumanns var myndað á Flókagötu í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flókagötu í vesturátt, við Gunnarsbraut. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 186 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Flókagötu var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.