18 Ágúst 2012 12:00

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Flókagötu í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flókagötu í austurátt, við Gunnarsbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55. 

Vöktun lögreglunnar á Flókagötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. 

Vöktun lögreglunnar á Flókagötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.