1 Nóvember 2010 12:00

Brot 121 ökumanns var myndað á Flókagötu í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flókagötu í austurátt, við Gunnarsbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 233 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sextán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Flókagötu var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.