27 Ágúst 2010 12:00

Brot 2 ökumanna voru mynduð á Framnesvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Framnesveg í suðurátt, að Vesturbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðar ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar á Framnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.