14 Apríl 2011 12:00

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Garðaflöt í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðaflöt í vesturátt, við Smáraflöt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 40 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 60%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 41-66%, og meðalhraði hinna brotlegu hefur líka verið í hærri kantinum, eða 47-48 km/klst.