2 Apríl 2012 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Garðaflöt í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðaflöt í vesturátt, við Smáraflöt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56. 

Vöktun lögreglunnar á Garðaflöt er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.