14 Apríl 2015 13:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Garðaflöt í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðaflöt í vesturátt, við Smáraflöt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar á Garðaflöt er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.