5 Nóvember 2021 14:41

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Garðahraunsvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðahraunsveg í vesturátt, að Hraunprýði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 10 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Garðahraunsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.