25 Nóvember 2016 12:09

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Gömlu Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gömlu Hringbraut í vesturátt, á móts við BSÍ. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 246 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Gömlu Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en mikil rigning var þegar vöktunin átti sér stað.