4 Júní 2018 15:55

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Gömlu Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gömlu Hringbraut í vesturátt, á móts við BSÍ. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 281 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Gömlu Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.