7 September 2015 14:23

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Grandagarði í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grandagarð í suðurátt, á móts við verbúð nr. 67. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Grandagarði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.