8 Ágúst 2016 17:49

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Grandagarði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grandagarð í norðurátt, á móts við Grandagarð 16. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Grandagarði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.