12 Ágúst 2016 16:17

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Grandagarði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grandagarð í suðurátt, á móts við Grandagarð 16. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 128 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Grandagarði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.