8 Maí 2019 08:17

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Grandagarði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grandagarð í norðurátt, á móts við Bótarbryggju. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna,  eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Grandagarði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.