27 Ágúst 2015 16:46

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Grandagarði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grandagarð í norðurátt, á móts við verbúð nr. 55. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 111 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar á Grandagarði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.