28 Júlí 2020 09:55

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í suðurátt, við Hvammsgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 280 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.