25 Október 2021 09:52

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í norðurátt, við Breiðagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 277 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.