2 Júní 2022 14:31

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í norðurátt, að Hvammsgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 286 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.