10 Febrúar 2023 14:06

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í suðurátt, við Hvammsgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 206 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.