5 Mars 2015 15:18

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í norðurátt, við Hvammsgerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 156 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi, en á meðan henni stóð gekk á með éljum og snjóþekja var á hálli akbrautinni, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.