10 Ágúst 2015 16:18

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í suðurátt, við Hvammsgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 248 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.