13 Ágúst 2015 13:08

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í norðurátt, að Hvammsgerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 199 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.