20 Nóvember 2009 12:00

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í suðurátt, að Hvammsgerði. Frá klukkan þrjú til sex síðdegis fóru 384 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega tíundi hluti ökumanna, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.