14 Janúar 2016 18:47

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í norðurátt, við biðstöð nærri Funafold. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 351 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.