30 Nóvember 2017 16:41

Brot 205 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í suðurátt, á móts við Naustabryggju. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 650 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimmtíu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á með hraðamælingunni stóð.