31 Janúar 2018 16:09

Brot 181 ökumanns var myndað á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í suðurátt, á móts við Dverghamra. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 562 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimmtíu og sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.