2 Nóvember 2018 20:11

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í norðurátt, á móts við Dverghamra. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 506 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að slydda og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.