20 Febrúar 2020 09:37

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í suðurátt, að Fjallkonuvegi. Á fjörutíu mínútum, eftir hádegi, fóru 335 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.