17 Janúar 2022 10:15

Brot 101 ökumanns var myndað á Gullinbrú í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í suðurátt, á móts við Bryggjuhverfið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 636 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og fimm óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.