12 Nóvember 2008 12:00

Brot 268 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Grafarvogi á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í suðurátt, að Gullinbrú. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 563 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjötíu og tveir óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 112.