30 Desember 2010 12:00

Brot 150 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í norðurátt, á milli Höfðabakka og Fjallkonuvegar. Á fjörutíu og fimm mínútum, eftir hádegi, fóru 532 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og fjórir óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 93.

Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp en einnig hefur verið kvartað undan hraðakstri á þessum stað og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin.