17 Október 2014 12:00

Brot 147 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í suðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 504 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrjátíu og fimm óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 94. 

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.