5 Nóvember 2014 12:00

Brot 106 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í norðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 427 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88. 

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.