16 Nóvember 2015 16:13

Brot 149 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í suðurátt, á móts við Bryggjuhverfið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 465 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.