1 Október 2008 12:00

Brot 185 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Grafarvogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í norðurátt, við Gullinbrú. Á hálftíma, eftir hádegi,  fóru 344 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimmtíu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.