24 Júní 2008 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Gullteig sl. miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, að Silfurteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 57 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.