21 September 2016 19:31

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í norðurátt, við Hraunteig. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.