4 September 2017 15:32

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, að Kirkjuteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.