18 September 2018 16:34

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, að Kirkjuteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.