9 September 2020 17:07

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, við Kirkjuteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 45 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.