12 Október 2021 09:56

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, við Kirkjuteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.