3 September 2009 12:00

Nítján voru staðnir að hraðakstri á Gullteig í Reykjavík í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru brot 19 ökumanna mynduð á Gullteig en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, við Laugateig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því óku 37% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu en við götuna er Laugarnesskóli.