30 Ágúst 2010 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, við Laugarnesskóla. Á einni klukkustund, í hádeginu, fóru 48 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.