17 Febrúar 2012 12:00

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, við Silfurteig (nærri Laugarnesskóla). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.