31 Ágúst 2012 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Gullteig í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, að Silfurteig (nærri Laugarnesskóla). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47. 

Vöktun lögreglunnar á Gullteig er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. Þess má geta að skólabörn fóru þarna um á meðan lögreglan var við hraðamælingar, en fyrrnefndur Laugarnesskóli er við götuna.